Á myndinni má sjá hlaupara samtakanna í RVK maraþoni 2022

Viltu hlaupa fyrir okkur: Við tökum þátt í Reykjavíkurmaraþoninu 2022

Á myndinni má sjá hlaupara samtakanna í RVK maraþoni 2022

Nú eru nokkrir dagar í Reykjavíkurmaraþonið og við höfum skráð PCOS samtök Íslands á áheitasíðu Reykjavíkurmaraþonsins og áhugasöm geta hlaupið fyrir samtökin eða styrkt þá hlaupara sem ætla að mæta til leiks fyrir okkur.

Skráningin fer fram hér: www.rmi.is en áheitasíðan er www.hlaupastyrkur.is

Við þiggjum auðvitað allan góðan stuðning og hvetjum sem flest til að fylgjast með, taka þátt eða styrkja hlauparana okkar! Deilið endilega upplýsingum um hlaupið og hlauparana!

Sjáumst á laugardag í Reykjavíkurmaraþoninu!